1001 Albums Summary

Listening statistics & highlights

504
Albums Rated
3.68
Average Rating
46%
Complete
585 albums remaining

Rating Distribution

Rating Timeline

Taste Profile

2010
Favorite Decade
Punk
Favorite Genre
UK
Top Origin
Cheerleader
Rater Style ?
108
5-Star Albums
10
1-Star Albums

Breakdown

By Genre

Top Styles

By Decade

By Origin

Albums

You Love More Than Most

AlbumYouGlobalDiff
Oedipus Schmoedipus
Barry Adamson
5 2.78 +2.22
Vulnicura
Björk
5 2.79 +2.21
Scott 4
Scott Walker
5 2.8 +2.2
Songs The Lord Taught Us
The Cramps
5 2.84 +2.16
This Nation’s Saving Grace
The Fall
5 2.89 +2.11
Talking With the Taxman About Poetry
Billy Bragg
5 2.95 +2.05
Psychocandy
The Jesus And Mary Chain
5 2.96 +2.04
Steve McQueen
Prefab Sprout
5 3 +2
Duck Stab/Buster & Glen
The Residents
4 2.04 +1.96
The Rising
Bruce Springsteen
5 3.05 +1.95

You Love Less Than Most

AlbumYouGlobalDiff
(Pronounced 'Leh-'Nérd 'Skin-'Nérd)
Lynyrd Skynyrd
1 3.73 -2.73
Boston
Boston
1 3.7 -2.7
Hotel California
Eagles
1 3.58 -2.58
Led Zeppelin IV
Led Zeppelin
2 4.33 -2.33
Made In Japan
Deep Purple
1 3.28 -2.28
Shake Your Money Maker
The Black Crowes
1 3.28 -2.28
Pump
Aerosmith
1 3.1 -2.1
Led Zeppelin II
Led Zeppelin
2 4.09 -2.09
Led Zeppelin III
Led Zeppelin
2 3.94 -1.94
Electric Music For The Mind And Body
Country Joe & The Fish
1 2.84 -1.84

Artists

Favorites

ArtistAlbumsAverage
Radiohead 5 4.8
Beatles 6 4.67
David Bowie 5 4.6
R.E.M. 3 5
Bruce Springsteen 3 5
Bob Dylan 7 4.29
Stevie Wonder 3 4.67
The Smiths 3 4.67
Nick Drake 3 4.67
The Cure 3 4.67
Beck 3 4.67
Bob Marley & The Wailers 3 4.67
PJ Harvey 3 4.67
Pink Floyd 2 5
Nirvana 2 5
Nick Cave & The Bad Seeds 2 5
Pixies 2 5
Elliott Smith 2 5
The Clash 2 5
Björk 2 5
Sonic Youth 3 4.33

Least Favorites

ArtistAlbumsAverage
Led Zeppelin 3 2

5-Star Albums (108)

View Album Wall

Popular Reviews

Low-Life by New Order

Elska New Order sándið. Mjög ólíkt Joy Division en samt kemur JD alltaf annað slagið í gegn. Frábær lög og minningarlagið um Ian Curtis mjög fallegt.

Metal Box by Public Image Ltd.

Mjög gott og þróaðra póstpönk hjá PIL. Bassinn hjá Jah Wobble geggjaður. "Söngur" Lydon truflar örugglega marga en ekki mig.

The Scream by Siouxsie And The Banshees

Siouxie var ógeðslega flott. Ein af fyrstu postpönk plötunum og hafði mikil áhrif á það sem á eftir kom.

4-Star Albums (188)

1-Star Albums (10)

All Ratings (504)

Elvis Presley by Elvis Presley
Oct 27 2023

Frábær plata með skemmtilegum einföldum rokklögum. Blue moon í mjög flottri útgáfu.

This Year's Model by Elvis Costello & The Attractions
Oct 30 2023

Ekki það besta frá Costello. Frekar einsleitt. Pump it up langbesta lagið og Lipstick Vogue líka skemmtilegt pönk.

The Chronic by Dr. Dre
Oct 31 2023

Merkilegt menningarframlag þess tíma. Mörg góð lög en líka mikið af lögum sem máttu missa sín. Snoop lögin langbest. Lil ghetto boy uppgötvun mín í þessari yfirferð.

Ready To Die by The Notorious B.I.G.
Nov 01 2023

East coast vinnur West coast í þessari umferð. BIG geggjaður rappari og rímari. Now I'm in the limelight 'cause I rhyme tight Time to get paid, blow up like the World Trade Born sinner, the opposite of a winner Remember when I used to eat sardines for dinner. En líkt og Chronic verður þetta dáldið leiðigjarnt til lengdar og þessu fáranlegu innslögum á milli algjörlega ofaukið.

Aftermath by The Rolling Stones
Nov 02 2023

Nú er ég hættur þessari meðvirkni. Þessi plata markar eflaust einhver tímamót í sögu Stóns, en fyrir mig var hún bara vonbrigði. Stenst engan samanburð við það sem Bítlarnir voru að gera á sama tíma, ef þetta átti að vera einhver samkeppni milli þeirra í gamla daga. Þrjú góð lög, restin einfaldlega leiðinleg. Lady Jane það lag sem mér fannst mest í spunnið og sítarinn í Paint it black líka góður, en George Harrisson var þegar búinn að spila á hann í Norwegian wood, svo ekkert nýtt þar.

In Rainbows by Radiohead
Nov 03 2023

Þessi plata er einfaldlega snilldarverk,ekkert meira um það að segja. Engir hittarar en líklega heildstæðasta Radiohead platan.

Californication by Red Hot Chili Peppers
Nov 06 2023

Þessi plata kom mér skemmtilega á óvart. Átti von á fillerum með smellunum en öll lögin eru eiginlega góð. Californication er frábært lag. Frábær riff og bassinn hjá Flea geggjaður. Gallinn á RHCP finnst mér eiginlega vera söngurinn hjá Kiedis. Hann er leiðigjarn. Eftir 3 hlustanir var ég kominn með hausverk og gat ekki meir. Bara hægt að renna þessari plötu í gegn endrum og sinnum. Þegar við bætast heymskulegir textar þá segi ég 3 stjörnur.

Sign 'O' The Times by Prince
Nov 07 2023

Prince var snillingur. Ótrúlegt samansafn af frábærum og gerólíkum lögum. Sign O the times, Starfish and coffee og I could never take the place of your man, ekki mikil líkindi milli þessara frábæru laga. Góðir textar líka. The Cross greip mig í þessari yfirferð, magnað lag. Eins og við er að búast á tvöfaldri plötu frá afkastamiklum snillingi ekki alveg jafn góð lög inn á milli. Meistarastykki frá mögnuðum listamanni, en ég er á Purple Rain vagninum.

Fleet Foxes by Fleet Foxes
Nov 08 2023

Óskaplega fallegar lagasmíðar og vönduð tónlist, líklega aðeins of vandað fyrir minn smekk. Vantar einhvern smá hráleika og eina og eina skítuga nótu. Skil samt vel þá sem elska refina. Mjög góð vinnutónlist en ekki eitthvað sem ég myndi hlusta mikið á þess utan. White Winter Hymn er alltaf frábært lag og píanó kaflinn í lok He doesnt know why var alla vega smá spúnk.

The Madcap Laughs by Syd Barrett
Nov 09 2023

Frábær plata. Átti von á einhverri sýru, en þetta er bara mjög skemmtileg plata. Fínustu bítlalög og smá Scott Walker í þessu. Fyrri hlutinn þó betri en seinni. Syd greinilega mjög góður lagahöfundur sem við misstum því miður í sýru og geðsýki. Dark globe alveg nístandi lag. Ég á potttþétt eftir að hlusta oft á þessa plötu, svo ég held ég skelli bara 4 stjórnum á hana.

Kenya by Machito
Nov 10 2023

Mjög skemmtilegt að fá þessa miklu fjölbreytni. Þá er maður búinn að kynnast afro-cuban jazz og Machito. Skemmtileg tónlist.

The Stone Roses by The Stone Roses
Nov 13 2023

Frábær plata og ótrúlegt að þetta sé fyrsta plata hljómsveitar. Fyrstu þrjú lögin algjör snilld. Ekki margar plötur sem geta státað af jafn sterkri byrjun og svo Fools gold í lokin. Í mínum huga nær hún þó ekki alveg að teljast meistaraverk. Nær því ekki upp í fimmuna, 4,5.

Smash by The Offspring
Nov 14 2023

Hressandi og skemmtilegt skater pönk. Samt eitthvað sem maður hlustar ekkert mikið á eftir þrítugt held ég. Come out and play og Self esteem skemmtileg lög, en ekki klassík. Í þessari hlustun fannst mér eiginlega hreinræktaðri pönklög eins What happened to you og So alone skemmtilegri. Byrjunin á Bad habit stolin frá Korter í Flog. :-)

Welcome To The Pleasuredome by Frankie Goes To Hollywood
Nov 15 2023

Relax er eitt besta lag eitísins, frábært lag. Tvö önnur fín lög, fjögur cover lög, eitt reyndar langbest, og restin rusl. Ef þeir hefðu haldið sig við einfalda plötu en ekki tvöfalda hefði þetta verið fínt. En stór plús fyrir Relax.

Dr. Octagonecologyst by Dr. Octagon
Nov 16 2023

Veit ekki alveg hvað ég á að segja, líklega ekki nægja þekkingu á þessari tónlist til að dæma þessa plötu. Fannst margt gott, drungaleg bít og síkadelískt undirspil. Annað ekki eins gott, sérstaklega þessi eilífa kynlífsárátta rappara. Mjög ólíklegt að ég muni hlusta aftur á þetta. Ekki meira rapp í bili takk.

The Predator by Ice Cube
Nov 17 2023

Náði því miður ekki að hlusta nógu vel á þessa, enda kominn með óverdós á rappi. It was a good day er gott lag og Wicked fannst mér geggjað lag. Hlustaði nokkrum sinnum á það.

Pearl by Janis Joplin
Nov 20 2023

Þvílík rödd og þvílík tilfinning í söngnum! Engin henni lík, hvorki fyrr né síðar, Helvitís heróín. Lögin fannst mér líka flest mjög skemmtileg. Cry baby t.d. mjög gott lag og auðvitað Me and Bobby M. Solid fjarki.

Hotel California by Eagles
Nov 21 2023

Vá hvað þetta er leiðinlegt! Veit enga plötu sem byrjar á þremur jafnleiðinlegum lögum og svo versnar það bara. Hef komist ágætlega í gegnum lífið án þess að þurfa að hlusta á þessa plötu og það er ekki að fara að breytast. Skammastu þín algóritmi fyrir að gera mér þetta.

Different Class by Pulp
Nov 22 2023

Þetta er plata fyrir mín tónlistareyru. Besta plata Britpoppsins. Ekki einn veikur hlekkur. Smellirnir algjör klassík og meðlögin frábær líka. Þau eru svo góð að það er eiginlega ekki hægt að gera upp á milli þeirra. Toppað með hnyttnum samfélagsádeilu textum. Ég bið ekki um meira.

The United States Of America by The United States Of America
Nov 23 2023

Hlustaði á þessa einhverntímann í Kvennó, cloude song og Love Song for the Dead Che falleg. Fáránlegt hvað hvað tónlistarfólk komst upp með að gera furðulega hluti á major labelum á þessum tíma. 2.5

The Gershwin Songbook by Ella Fitzgerald
Nov 24 2023

Ósköp þægileg skammdegistónlist, svo lítið jólaleg. Ella er frábær söngkona, en þessi lög reyna ekki nóg á hana. Tónlistarflutningurinn óaðfinnanlegur.

Imagine by John Lennon
Nov 27 2023

John Lennon var snillingur með öllum þeim kostum og göllum sem snilligáfu fylgir. Imagine er og verður eitt áhrifamesta lag allra tíma, þó hann vissulega hefði mátt sleppa no possession kaflanum. :-) Jealous guy í flutningi hans er æðislegt og Oh lögin mjög góð. Smá beef við Paul a la Ice Cube og Dre fyndið. Í heild mjög góð plata frá mistækum manni sem breytti tónlistarsögunni.

If You Can Believe Your Eyes & Ears by The Mamas & The Papas
Nov 28 2023

Tvö góð lög, restin lala. Mér fannst þessi orða þetta best. "Most 60's groups had three choices: copy the beatles, copy the beach boys, or sexually abuse minors. These guys changed the game and did all three."

Nov 29 2023

Eflaust merkileg plata í kántrýsögunni en mér finnst finnst þetta bara ekki skemmtilegt. Hef heyrt margt betra úr kántrýheimum.

Urban Hymns by The Verve
Nov 30 2023

Bitter sweet symphony og The drugs don´t work eru algjör næntís klassík. Við það bætast svo Sonnet og Lucky man. En platan er svo miklu meira en bara þessi lög, heildstætt verk með nánast engum veikum hlekkjum. Mjög góð lög í ólíkum stílum, eins og t.d. Neon wilderness, Catching the wilderness og lokalagið Come on. Hefði verið gaman að sjá hvaða leið þeir hefðu farið ef þeir hefðu haldið áfram, en kannski hættu þeir bara á toppnum. Ef ég ætti að gagnrýna eitthvað þá er aðeins of mikill Oasis keimur af sumum lögunum. 4,,4.

With The Beatles by Beatles
Dec 01 2023

Early Beatles eru svo skemmtilegir, hægt að hlusta endalaust án þess að fá leið. Tvær plötur á fyrsta ári + sínglar er vissulega soldið metnaðarfullt og væri ekki gert í dag. Fyllt upp í með coverlögum en það voru allir að gera coverlög í sixtísinu. Allt líka frábærar útgáfur af annarra lögum. Gaman að hlusta á fyrsta lag Harrison. Söngurinn og harmónian í aðalhlutverki á plötunni, en alveg farið að glitta í það sem koma skyldi.

Made In Japan by Deep Purple
Dec 04 2023

Mér er til efs að það sé til leiðinlegri plata. Ekki nokkur leið að hlusta á þetta í gegn.

Queens of the Stone Age by Queens Of The Stone Age
Dec 05 2023

Skrýtin plata að velja. Allt í lagi rokk, en ekkert merkilegt að gerast. Er ekki að fara að hlusta á þessa aftur.

Timeless by Goldie
Dec 06 2023

Mikill áhrifavaldur í drum and bass tónlistinni. Má enn heyra í teknó- og danstónlist dagsins í dag.

Graceland by Paul Simon
Dec 07 2023

Svakalega skemmtileg plata. Paul Simon einn besti lagahöfundur sinnar kynslóðar.

Woodface by Crowded House
Dec 08 2023

Ég hef nú alltaf verið veikur fyrir andfætlingatónlist og hafði gaman af þeim Finn bræðrum þegar þeir voru í Split Enz. Þetta er hins vegar bara eitthvað huggulegt miðjumoð, eitt og eitt þokkalegt lag. Virðast líka vera áttavilltir, óvissir á hvaða áratug þeir eru eða hvernig tónlist þeir ætli að gera. Skil alls ekki hvað þessi plata er að gera á þessum lista. Textinn á Chocolate cake góður, en vá hvað lagið er leiðinlegt. Næstu plötu takk!

Ein mikilvægasta plata allra tíma. Ef Sex Pistols hefðu ekki komið fram væri líklega margt af þeirri tónlist sem ég elska ekki til . Ekkert Clash, ekki Rokk í Reykjavík, ekkert postpunk og leiðinlegra indie. Platan er líka bara svo skemmtileg, ógleymanleg lög. Anarchy, God Save the Queen, Pretty vacant. Auðvitað mýta að þeir hafi ekkert kunnað á hljóðfæri, þéttir og góðir með 21 árs reiðan John Lydon með rotnar tennur. Textarnir góðir samtímatextar. God save the Sex Pistols!

Cloud Nine by The Temptations
Dec 12 2023

Gaman að fá smá soul með sýkadelíu blæ. Gott grúv og góður hljóðfæraleikur. Örugglega skemmtileg plata fyrir djassunnandi saxafónlögmenn Hefur greinilega þótt merkileg plata á sínum tíma úr því hún fékk Grammy verðlaun, en skildi svo sem ekki mikið eftir við hlustun í dagsins önn.

Olympia 64 by Jacques Brel
Dec 13 2023

Jackques er æðislegur listamaður og með áhrif langt út fyrir hinn frönskumælandi heim. Scott Walker auðvitað mikill aðdáandi, en líka Bowie og Cave. Seasons in the sun líka eftir hann. Frábær plata, þ.e. lengri útgáfan ekki þessi stutta sem forritið vísar inn á. Fullkomin tónlist við vinnuna.

1999 by Prince
Dec 15 2023

Prince er alltaf skemmtilegur. Litla rauð corvettan er eitt uppáhaldslagið mitt með honum. Platan í heild góð og engin leiðinleg lög.

Led Zeppelin IV by Led Zeppelin
Dec 18 2023

Ég veit að mörgum finnst þetta mikil snilld, en það er fullreynt að þetta er bara ekki tónlist fyrir mig. Ég gaf þessu þó alveg séns núna. Nokkur þokkaleg rokklög en rest finnst mér alveg óskaplega leiðinlegt. Þar kemst ekkert með tærnar þar sem Stairway hefur hælana. Ekki meira Led Zeppelin fyrir mig.

Green River by Creedence Clearwater Revival
Dec 19 2023

CCR eru alltaf góðir. Gott rokk.

Raw Power by The Stooges
Dec 25 2023

Réttnefndasta plata sem ég hef hlustað á. Þvílíkur kraftur, Iggy er einstakur.

Blood Sugar Sex Magik by Red Hot Chili Peppers
Dec 27 2023

Gríðarlega hressandi fönk. Ógleymanlegir smellir. Of mörg lög, en dobbel albúm var vinsælt á þessum tíma.

Coles Corner by Richard Hawley
Dec 28 2023

Frábær plata. Elska röddina hans Hawley. Coles corner og The ocean eru mögnuð lög.

Daydream Nation by Sonic Youth
Jan 02 2024

Þessi plata er svo mikil snilld. Vanstilltir gítarar hafa aldrei hljómað betur. Fyrstu þrjú lögin neglur og svo er bara keyrt fulla leið áfram. Elska hraðaskiptingarnar. Höfðu mikil áhrif á allt það sem á eftir kom. No Sonic Youth = No Nirvana.

At Newport 1960 by Muddy Waters
Jan 08 2024

Skemmtilegur Chicago blues, mojoinn að virka fínt. Bein lína frá þessu í Rolling Stones og Jimi Hendrix.

Talking Book by Stevie Wonder
Jan 09 2024

Wonderbarnið Stevie enginn venjulegur snillingur. 22 ára og þetta er 15. platan hans! Frábær plata og góður upptaktur að snilldarverkinu Innervisions. Superstition er ótrúlega gott lag og I believe fallegt. Lögin grúva öll og bassi og synthi sýna samleik á við Xavi og Iniesta.

Jan 10 2024

Svanasöngur einnar bestu hljómsveitar allrar tíma. Smiths voru nefnilega hljómsveit ekki bara sérvitur söngvari. Girlfriend in a coma er eitt af mínum uppáhaldslögum, þvílíkur texti hjá M. Platan í heild frábær og rúllar ótrúlega vel. Þetta er svo gott stöff. A rush and a push, Stop me if you think you heard this one before, Last night I dreamt somebody loved me. Endalaust af yndislegum lögum með súrum textum. The Queen is dead er vissulega uppáhalds Smiths platan mín, en þeir eru aldrei að fara að fá minna en 5 stjörnur frá mér.

Birth Of The Cool by Miles Davis
Jan 11 2024

Ljúfur djass með ekki eins ljúfum manni. Nonet = 9 manna hljómsveit. :-)

Maggot Brain by Funkadelic
Jan 12 2024

Hafði lúmskt gaman af þessu fönkrokki. Allskonar hljóð og slatti af kúabjöllu, sem ég elska. Fyrsta lagið hins vegar of mikið gítarrúnk fyrir mig.

Melodrama by Lorde
Jan 16 2024

Mjög gott indípopp. Mikið undrabarn hún Lorde og svo rosalega ung þegar Royals slær í gegn. Mér finnst tónlistin hennar hafa þroskast mjög mikið þegar að kemur að þessari plötu. Áhrif frá Kate Bush, enda margt líkt með þeim. Virkilega fágað og vel gert allt.

Lost Souls by Doves
Jan 17 2024

Virkilega góð plata sem hafði farið undir radarinn hjá mér. Virkilega gott stöff sem ég mun hlusta á aftur.

Da Capo by Love
Jan 18 2024

Skrýtin plata og ekki skemmtileg. Til mun betri lög með þessari hljómsveit.

For Your Pleasure by Roxy Music
Jan 19 2024

Ansi gott art rock, þökk sé gríðarlega framsýnni menntastefnu Breta sem setti alla snillingana sem pössuðu ekki hefðbundið nám í Art School óháð fjárhag og þjóðfélagsstöðu. Byrjar vel, Do the stand og Edition of you góð lög. Svo kemur In every dream home a heartache. Alveg ótrúlegt lag með texta um uppblásna kynlífsdúkku. Verður ekki mikið meira arty en það. Platan í heild vann mikiði á í seinni hlustun, alltaf að taka eftir einhverju nýju. Níu mínútna laga sem var ekkert mál að hlusta á til enda. Síðasta platan með Brian Eno og hann nær svo sannarlega að setja mark sitt á plötuna með ótrúlegum hljóðum sem væntanlega enginn annar kunni að búa til árið 1973. Maður heyrir vel hvað þessi plata hefur haft mikil áhrif á marga tónlistarmenn.

My Generation by The Who
Jan 22 2024

Ótrúlega flott fyrsta plata. Gott einfalt heiðarlegt rokk, Góður söngur og frábær hljóðfæraleikur. My generation er algjör klassísk negla. Who höfðu mikil áhrif á pönkið þegar reynt var að vinda ofan af progvitleysunni og fara aftur í hráan einfaldleika fyrir einfaldar sálir eins og mig.

War by U2
Jan 23 2024

Ekki besta plata U2, en fjári skemmtileg samt. New Years Day finnst mér eitt af þeirra allra bestu lögum, þar sem skörðóttur gítarleikur Edge nýtur sín vel. Sunday bloody Sunday stendur alltaf fyrir sínu, en er orðið pínu slitið af ofspilun. Hins vegar eru þarna minna spilaðar perlur eins og Seconds, um kjarnorkuvá X-kynslóðarinnar og hið gullfallega "40". Ótrúlega flott albúmm kóver setur svo punktinn yfir i-ið. Stórfyrirtækið U2 er svo fyrirbæri út af fyrir sig. Búnir að halda út fjórir saman í 48 ár, frá því þeir voru 15 ára,, sem hlýtur að gera Adam, Larry og Edge heimsmeistara í umburðarlyndi og þolinmæði.

Jan 24 2024

Vá hvað þetta er hressandi og skemmtileg plata. Gæðapönk frá Buzzcocks, stutt og einföld lög. Engir hittarar en heldur ekkert leiðinlegt lag. Hressir, bætir, kætir.

Quiet Life by Japan
Jan 25 2024

Frumherjar í nýrómantík og ruddu flugbrautina fyrir Duran Duran. Vandað og gott synthapop með óaðfinnanlegum hljóðfæraleik. Mér hefur alltaf þótt röddin hans David Sylvain kúl, sérstaklega í rólegu lögunum eins og Despair og Forbidden colours sem hann gerði með Sakamoto. Ekkert jafngott lag á þessari plötu, en ekkert sem mér fannst áberandi leiðinlegt heldur. 3,5/5.

Jan 26 2024

Skemmtileg lög á fyrri hluta en alltof löng plata. 10 lög hefðu verið alveg nóg. Þetta verður bara endurtekning á því sama og meira fokk, bitches og dick, sem eldist ekki vel. Rappið vissulega að slíta barnsskónum en Public enemy gáfu út It takes a million sama ár, sem er fullorðins. Don´t believe the hype meira segja samplað á plötunni. En platan skilaði sínu og kom þeim á kortið.

Pretenders by Pretenders
Jan 29 2024

Frábær plata sem kom mér skemmtilega á óvart. Aldrei verið neinn Pretendesrs aðdáandi, en þessi plata er virklega heilsteypt, þétt og góð. Back on the chain gang er gott lag, en mér fannst mörg hinna laganna alls ekki síðri, eins og Precious og Tattooed love boys. Platan í heild bara svo góð. Á örugglega eftir að rúlla þessari í gegn aftur.

Pet Sounds by The Beach Boys
Jan 30 2024

Þessi plata er auðvitað bara meistaraverk og klárlega ein besta plata allra tíma. Áhrifin á tónlistaheimin ómetanleg. Lögin og hljóðheimurinn alveg ótrúlegur. God only knows er eins og það komi úr einhverri annarri æðri tónlistarvídd.. Mér finnst líka I just wasn´t made for these times alltaf ótrúlega fallegt, enda Brian einfaldlega of mikill snillingur fyrir þennan heim.

Ill Communication by Beastie Boys
Jan 31 2024

Virkilega góð plata hjá Beastie Boys. Mjög fjölbreytt og gaman að heyra pönk hjá þeim, byrjuðu sem pönkhljómsveit. Smá tilraunamennska í lokin, sem var líka mjög skemmtilega. Sabotage og Get it together þó skemmtilegustu lögin í þessari hlustun. Hlustaði ekki náið á textana, en mér heyrðist ekki vera neitt mikið af kvenfyrirlitningu.

Odessey And Oracle by The Zombies
Feb 01 2024

Góð sixtís plata. Alltaf gaman að fá eitthvað skemmtilegt sem maður þekkti ekkert fyrir. Auðvitað heyrt Time of the season en ekkert pælt í flytjandanum. Mörg önnur góð lög, Care of cell 44 fannst mér sérstaklega skemmtilegt. 3,5/5.

Ten by Pearl Jam
Feb 02 2024

Veit ekki alveg hvað ég á segja. Hörkugott rokk, en of mikið seventís rokk í þessu fyrir minn smekk. Svo er það Eddie Vedder, sem bara fellur því miður ekki að mínum eyrum. Bestur í rólegu lögunum, fannst mér, finnst miðkaflinn bestur, Black, Jeremy og Oceans. Margt alls ekki fyrir minn smekk, en með áframhaldandi sjálfsvinnu og opnum huga mun ég kannski ná að fíla Even Flow og Alive. Set 4* í þeirri von.

The Stranger by Billy Joel
Feb 05 2024

Mjög fín plata hjá Billy, Yndisleg lög eins og Just the way you are og Vienna, en líka öðru vísi lög eins og Scenes from an Italian Restaurant.

Feb 06 2024

Alveg stórbrotin plata og magnað að slútta ferlinum svona meistaralega. Virkilega þéttur og góður pakki sem maður hefur mikið hlustað á í gegnum tíðina. Maðurinn í svörtu fötunum er auðvitað magnaður sögumaður svo lögin fá einhvern vegin nýja merkingu í flutningi hans, eins og t.d. In my life. The man comes around og I hung my head ótrúlega sterk Cash lög, en það er samt alltaf Hurt sem stendur upp úr á þessari plötu.

Movies by Holger Czukay
Feb 08 2024

Mjög áhugaverð plata. Can miklir áhrifavaldar í indítónlist og skemmtilega tilraunir á þessari plötu. Cool in the pool and Persian love skemmtileg lög.

Country Life by Roxy Music
Feb 09 2024

Ágætis Roxy plata og áhrifn á eitísið augljós. Fyrri hlutinn betri. Finnst hún samt ekki jafn góð og For your pleasure.

Aqualung by Jethro Tull
Feb 12 2024

Ekki skemmtilegt finnst mér. Minnir á rokksöngleikjatónlist. 2,5/5

Queen II by Queen
Feb 13 2024

Alltof mikið prog. Queen enn að finna sinn hljóm. Gera það í síðasta laginu sem er langbest.

In It For The Money by Supergrass
Feb 14 2024

Góð britpop plata. Enginn banger eins og Alright, en fín plata í heild. Richard III og Sun Hits the Sky hressileg, en rólegri lögin eins og Hollow little reign ekki síðri.

The Wall by Pink Floyd
Feb 16 2024

Magnað meistaraverk.

Head Hunters by Herbie Hancock
Feb 19 2024

Herbie alltaf grúví.

The Atomic Mr Basie by Count Basie & His Orchestra
Feb 21 2024

Skemmtilegt. Magnað plötuumslag.

White Light by Gene Clark
Feb 22 2024

Skemmtileg plata, fínt fólkrokk.

Boston by Boston
Feb 23 2024

Svakalega leiðinleg plata, verra en ég bjóst við. Líklega það lélegasta sem við höfum fengið og toppað með ljótasta coveri sem sögur fara af.

Feb 26 2024

Klárlega ein af bestu plötum allra tíma. Blowin in the wind kannski pínu ofspilað, en Girl from the North Country eitt af uppáhalds Dylan lögum mínum + Masters of War, Masters of War, A hard rain´s og Dont think twice.

Feb 27 2024

Skítsæmileg plata, en alls ekki það besta frá Kinks. Ekkert sem greip mann sérstaklega, en alltaf metnaðarfullt að gera concept plötu.

Illinois by Sufjan Stevens
Feb 28 2024

Fullkomin plata í mínum huga sem hentar við öll tækifæri. Falleg og skemmtileg með mögnuðum textum. Hann spilar sjálfur á öll hljóðfæri, elska óbóið í lögunum enda er hann lærður óbóleikari.

Ace of Spades by Motörhead
Feb 29 2024

Snilldarplata. Lemmy er svo mikill rokkari. Ace of spades stendur alltaf fyrir sínu.

Definitely Maybe by Oasis
Mar 01 2024

Vitleysingar sem sömdu frábær lög. Ekki alveg jafn góð plata og Whats the story morning glory en fullt af góðum lögum.

Lust For Life by Iggy Pop
Mar 04 2024

Snilldarplata. Vinirnir Iggy og Bowie flottir saman. Rosalega heilsteypt plata en hittarar líka.

Tusk by Fleetwood Mac
Mar 05 2024

Mistæk plata finnst mér. Auðvitað erfitt að fylgja eftir Rumours en ég átta mig ekki tilraunamennskunni sem á að vera á þessari plötu. Flest Lindsay lögin finnst mér leiðinleg, stelpurnar halda þessari plötu uppi. Mikið af fallegum lögum eins og Storm og Sara. Ekki góð hugmynd að skella í dobbel albúm.

Mar 06 2024

Önnur Kinks plata. Alltaf skemmtilegir. Waterloo sunset geggjað lag og neglir henni beint í 4. David Watts og Death of a clown líka mjög skemmtileg.

Mar 11 2024

Mjög góð plata í heild og gaman að heyra ólík áhrif í lögum, eins og t.d. frá Depeche mode. Ég hlustaði líka á Resistance og mér finnst þessi eiginlega betri. Gimmí 5.

Blunderbuss by Jack White
Mar 12 2024

Flott rokk eins og við var að búast., fullt af góðum lögum. Var sérstaklega hrifinn Missing pieces í þessari hlustun og svo er Im shakin eins klassískt Jack White rokk og það gerist.

La Revancha Del Tango by Gotan Project
Mar 13 2024

Mjög töff tónlist sem var mjög gaman að kynnast.

The Fat Of The Land by The Prodigy
Mar 14 2024

Þetta er það sem maður myndi kalla sturluð plata. Þvílík keyrsla, platan í ræktinni fyrir þá sem hafa gaman af slíku.

Maxinquaye by Tricky
Mar 15 2024

Mjög flott tónlist og mikil áhrif á triphoppið. Verður aðeins einhæft til lengdar.

Protection by Massive Attack
Mar 22 2024

Alveg ótrúlega svöl plata, ein af mínum uppáhalds. Fyrstu tvö lögin algjörir bangerar og restin frábær. Ekki einn veikur hlekkur.

The Doors by The Doors
Mar 26 2024

Fínasta plata, fullt af góðum lögum. The end ótrúlegur endi, sturlað lag.

Tigermilk by Belle & Sebastian
Mar 28 2024

Aldrei verið mikill aðdáeandi B&S. Ósköp huggulegt krúttindípopp.

Garbage by Garbage
Mar 29 2024

Fínasta rokk. Aukastig fyrir trommusamplið í Stupid girl. 3,5.

OK Computer by Radiohead
Apr 01 2024

Þetta er alveg ótrúleg plata sem verður bara betri með árunum. Kannski bara besta plata allra tíma. Maður hlustar á eitt lag og hugsar vá hvað þetta er gott, en þá kemur bara annað ennþá betra lag næst. Ekki einn veikur hlekkur. 10/5

Casanova by The Divine Comedy
Apr 03 2024

Alltaf gaman að fá plötur sem maður hefur ekki heyrt áður og eru jafnvel þokkalegar. Ég hafði bara nokkuð gaman af kammerpoppinu með Scott Walker ívafi. Misgott þó.

Tical by Method Man
Apr 04 2024

Fínasta rappplata. Góðir textar og ekkert rugl.

Aja by Steely Dan
Apr 05 2024

Of stílhreint og snyrtilegt fyrir minn smekk. 40 sessjón spilarar, þar af 6 mismunandi trommarar. Svakalega flottur hljóðfæraleikur samt auðvitað og fínt í kokteilpartý. Never mind the bollocks kemur út mánuði síðar, sem betur fer.

Revolver by Beatles
Apr 09 2024

Þvílíkt snilldarverk. Yndisleg lög í bland við tilraunamennsku sem nær hápunkti í Tomorrow never knows. Þvílíkt lag, sem gæti allt eins verði samið í dag. En klassísku bítlalögin standa svo sannarlega fyrir sínu líka. Eleanor Rigby, Here there and everywhere o.s.frv. For no one greip mig sérstaklega í þessari yfirferð, maður heyrir það ekki oft.

Apr 10 2024

Frábær plata sem varð betri og betri eftir því sem ég hlustaði oftar á hana. By this river óskaplega fallegt lag og Kings lead hat (Talking head) ótrúlega gott. Margt þar sem síðan heyrðist í póstpönkinu. Smá Adam Ant meira að segja. :-)

Achtung Baby by U2
Apr 11 2024

Hlustaði vandræðalega mikið á þetta á sínum tíma. Eldist ekki vel. Finnst fyrstu plöturnar þeirra miklu betri núna. Meira real.

New Boots And Panties by Ian Dury
Apr 12 2024

Elsku Ian Dury, grallari og dónatextakall. Þessi plata er alveg upp í mínu húsasundi, mjög skemmtileg. Elska cockneypönk.

Apr 17 2024

Talsvert betri plata en ég átti von á, enda með innrætta fordóma pönksins gagnvart proggi. Ágætis vinnutónlist og 21st century schizoid man finnst mér magnað lag. Þó líklega ekki eitthvað sem ég á eftir að hlusta á aftur.

Apr 18 2024

Ekki jafngóð og fyrri platan með Doves sem við fengum. Ágætt inn á milli en voða mikið af veikum hlekkjum.

90 by 808 State
Apr 19 2024

Kool stöff.

The College Dropout by Kanye West
Apr 22 2024

Fínasta plata hjá Kanye, mjög flott debut.. Aðeins of löng fyrir mann eins og mig sem ekki hlustar mikið á rapp og hiphop. Plús fyrir að vera ekki stútfull af gangstastælum. 3,5.

Bryter Layter by Nick Drake
Apr 23 2024

Svakalega flott plata og góð vinnutónlist. Northern sky er með fallegri lögum. Sorglegt að hann skyldi ekki fá að lifa öll hrósin sem tónlist hans á skilið.

Dirty by Sonic Youth
Apr 24 2024

Frábær plata, elska hráa, ókláraða sándið hjá Sonic. Ekki alveg jafn góð og Daydream nation. Eru þarna eitt og eitt lag sem hefðu mátt miss sín.

Wild Is The Wind by Nina Simone
Apr 25 2024

Nina Simone er algjörlega einstök. Textinn og flutningurinn á Four women magnaður. Flutningurinn á wild is the wind er svo eitthvað ekki af þessum heimi. Eftir að hafa hlustað á það nokkrum sinnum get ég bara ekki annað en sett 5 stjörnur á þessa plötu.

Apr 26 2024

Stórmerkileg plata/plötur. Fyrst mjög fín hiphop plata frá BigBoi sem flaut mjög fínt í gegn með rapslögurum eins og Ghettomusick. Síðan allskonar skemmtileg tilraunamennska frá André 3000 undir augljósum Prince áhrifum, þar til risasmellurinn HeyYa skellur allt í einu á manni. Virkilega skemmtilegt stöff.

Live! by Fela Kuti
Apr 29 2024
Veckatimest by Grizzly Bear
May 09 2024

Fín plata. Two weeks er frábært lag.

Surrealistic Pillow by Jefferson Airplane
May 13 2024

Margt gott. White rabbit frábært lag og somebody to love mjög skemmtilegt líka. Einum of mikil sýra hins vegar fyrir mig á köflum.

Moon Safari by Air
May 14 2024

Mjög ljúf og flott tónlist, mjög þægileg vinnutónlist. Frábærir tónlistarmenn en aðeins of settlegt samt fyrir minn smekk. 3,5

The Rise & Fall by Madness
May 17 2024

Fínt að fá smá Madness, alltaf léttir og skemmtilegir. Fullt af góðum lögum, tomorrows just another day alltaf í miklu uppháldi hjámér. Slappari kaflar inn á milli.

Stankonia by OutKast
May 21 2024

Outkast eru mjög skemmtilegir. Góðir kaflar á þessu sem ég lærði að væru dæmigerðir fyrir suðurríkjarapp. Bombs over Baghdad rosalegt lag.

Getz/Gilberto by Stan Getz
May 22 2024

Yndisleg plata sem hefur verið lengi í uppáhaldi hjá mér. Tónlistarsögulega líka mjög mikilvæg. Allt frábært við hana.

Goo by Sonic Youth
May 23 2024

Sonic Youth alltaf góð. Fullt af góðum lögum. Mote finnst mér frábært lag. Samt ekki alveg jafn góð plata og Daydream Nation.

Scum by Napalm Death
May 24 2024

Svakalega þétt en of þungt fyrir mig.

The Band by The Band
May 27 2024

Mjög góð plata í heild. Old Dixie og Up on Cripple Creek frábær lög og eins fannst mér Whispering Pines ótrúlega fallegt. Eitt lag, Jawbone, reyndar mjög leiðinlegt .

Ctrl by SZA
May 30 2024

Ágætis tónlist. Pínu leiðigjarnt til lengdar. Fannst fyrri hlutinn mun betri en seinni.

Fear and Whiskey by Mekons
May 31 2024

Alltaf gaman að kynnast einhverju nýju. Hafði aldrei heyrt um Mekon. Mjög skemmtileg plata og á eftir að kíkja betur á tónlistina þeirra.

Black Sabbath by Black Sabbath
Jun 03 2024

Alls ekkert svo slæmt.

Blackstar by David Bowie
Jun 04 2024

Ótrúlega flott plata. Magnaður svanasöngur eins besta tónlistarmanns allra tíma.

World Clique by Deee-Lite
Jun 05 2024

Hressir krakkar, of mörg lög. Groove is in the heart mesti smellurinn.

Green Onions by Booker T. & The MG's
Jun 06 2024

Ansi hresst og skemmtilegar útgáfur af allskonar lögum. Booker greinilega mikið undrabarn.

Happy Sad by Tim Buckley
Jun 07 2024

Frekar leiðinleg plata eiginlega. Ekki hans besta verk.

Dummy by Portishead
Jun 11 2024

Elska þessa plötu og Bristol sándið. Mikil áhrif á síðari tíma bönd og söngkonur.

Beach Samba by Astrud Gilberto
Jun 12 2024

Elska þetta brasilíska bossanova og samba. Mjög góð plata að hlusta á við matarundirbúning.

Jun 13 2024

Magnaður listamaður og ótrúlegur söngur. Þessi lög voru samt ekki að heilla mig og þessir eilífu píkuskrækir skemmdu alla vega fyrir mér.

Gorillaz by Gorillaz
Jun 17 2024

Svona plötu gera bara snillingar. Alls konar tónlist og tilraunamennska en allt gengur þetta upp. Geggjaðir lagatitlar. Fáum Ibraim Ferrer til að semja og syngja eitt laga. Bætir svo brilliant konsepti og þá getur ekki niðurstaðan orðið önnur en 5 stjörnur.

Moondance by Van Morrison
Jun 18 2024

Van Morrisson ljúfur og góður. Fyrstu þrjú lögin gull og saxófónninn í These dreams of you.

Chelsea Girl by Nico
Jun 21 2024

Finnst Nico æðisleg og mjög þægileg áhlustunar. Eitt og eitt lag þarna sem hafði mátt missa sín. 3,5

It's Too Late to Stop Now by Van Morrison
Jun 24 2024

Mér finnst voða skrýtið að vera með hljómleika- og safnplötur á þessum lista. En Van Morrison er alltaf góður, en nýbúnir með aðra plötu frá honum. Gloria er samt alltaf geggjuð.

Superfly by Curtis Mayfield
Jun 25 2024

Finnst við vera búnir að fá mikið af þessari tegund tónlistar. Ósköp þægilegt en engar flugeldasýningar, enda kvikmyndatónlist.

Darklands by The Jesus And Mary Chain
Jun 27 2024

The Jesus and Mary Chain voru frábær viðbót í indíið á sínum. Besta platan en Just like honey þó alltaf besta lagið og það sem heldur nafni þeirra á lofti.

Exit Planet Dust by The Chemical Brothers
Jun 28 2024

Fínasta tónlist og stuð. Rúllar bara mjög vel og þægilegra áhlustunar en ég átti von á. 3,5.

Celebrity Skin by Hole
Jul 04 2024

Aldrei hlustað á Hole svo ég ákvað að rúlla í gegnum plötuna. Ágætis stelpurokk en frekar klént. Ekkert nýtt í þessu.

The Bends by Radiohead
Jul 08 2024

Þetta er platan sem negldi mig fastan á Radiohead vagninn, hlustaði á hana út í eitt. Áttu eftir að þróast mikið en hún mun alltaf vera í miklu uppáhaldi hjá mér. Lög eins og High and dry og Fake plastic tree sem mér finnst vera ein af allra bestu lögum þeirra. Skotheld fimma.

Central Reservation by Beth Orton
Jul 10 2024

Mjög þægileg plata. Gamall hljómur í nútímalegum búningi.

Siamese Dream by The Smashing Pumpkins
Jul 11 2024

Svakalega þétt og öflug plata.

Parallel Lines by Blondie
Jul 16 2024

Frábær plata, sem stenst ótrúlega vel tímans tönn. Smellirnir geggjaðir en restin líka bara mjög fín. Debbie æðisleg söngkona.

Rubber Soul by Beatles
Jul 23 2024

Snilldarverk. Millistykki í það sem koma skal. In my life alveg yndislegt.

Pornography by The Cure
Jul 24 2024

Mjög góð plata. Engir hittarar en hrikalega sterk plata í heild. Vissulega dáldið þung.

Lady In Satin by Billie Holiday
Sep 27 2024

Mjög ljúft og þægilegt.

Music From Big Pink by The Band
Oct 01 2024

La la. Eitt gott lag og einn góður Dylan cover. Ekki plata sem ég nenni að hlusta á aftur.

Oct 02 2024

Norman Cook er cool. Mjög skemmtilegt sánd sem hann átti svo eftir að negla algjörlega á næstu plötu. 3,5

Remedy by Basement Jaxx
Oct 03 2024

Skemmtilegt hásteknó. Nokkrar góðar stuðneglur. Ætlaði gefa 3 en hlustaði svo á hana meðan ég var að elda og komst í svo gott stuð að ég ætla að gefa henni 4.

Green by R.E.M.
Oct 04 2024

Þetta var algjör himnasending. Frábær plata, sem oft gleymist í umræðunni um plötur REM. Algjörlega með sitt sánd, sem eldist alveg ótrúlega vel.

Heaven Or Las Vegas by Cocteau Twins
Oct 07 2024

Mjög fín plata hjá Skotunum. Cherry coloured funk frábært lag og hin rúlla öll bara mjög vel.

Oct 08 2024

Þetta er mjög flott plata hjá Lauryn, allt mjög vandað og vel gert. Frábær lög eins og Ex-Factor og Doo Wop. Á klárlega skilið allt það lof sem hún fær. Þetta er því miður ekki tónlist sem höfðar mikið til mín, gtípur mig ekki alveg.

Oct 09 2024

Aðeins og mikið eitís meira að segja fyrir mig. 2-3 góð lög en restin eldist ekkert rosalega vel.

Born To Run by Bruce Springsteen
Oct 11 2024

Þvílík plata, þvílíkur gleðidagur. Allt geggjuð lög hvert á sinn hátt, frábærir textar. Klassííkerar sem eru flestir enn stór hluti af tónleikaprógrammi hans. 50 stjórastjörnur.

Play by Moby
Oct 14 2024

Fyrri hlutinn frábær, restin leiðinleg. Moby hefði átt að fara með rakvélina á helming laganna,

Vol. 4 by Black Sabbath
Oct 15 2024

Ágætis bárujárnsrokk en ekki góð vinnutónlist. Þéttur hljófæraleikur, kraftmikill trommuleikur. En þetta sírenusöngvaragól á engin önnur kynslóð en boomerar að þurfa að þola, þau tóku út þjáninguna fyrir okkur hin. Eins og að vera fastur í eilífri rokkóperumatröð. Hvað Under the sun hefði t.d. getað orðið flott með almennilegum söng. Changes sleppur einna skást frá þessari misþyrmingu. Black Sabbath - Ozzy = 3 stjörnur.

Killing Joke by Killing Joke
Oct 17 2024

Mjög góð plata. Frábær hljómsveit með skemmtilega Íslandstengingu. Þétt og gott Postpunk/Goth.Væntanlega haft mikil áhrif á Cure eða öfugt. Báðar hljómsveitir alla vega með léttklikkaða frontmenn, þó Jaz hafi líklega vinninginn.

Peggy Suicide by Julian Cope
Oct 18 2024

Margt áhugavert og ágætt. Diskur 2 hefði alveg mátt missa sín.

It's Blitz! by Yeah Yeah Yeahs
Oct 21 2024

Ótrúleg tilviljun að fá tvær plötur í röð frá sömu hljómsveit. Báðar plöturnar báðar mjög fínar. Mér fannst eldri platan hrárri og skemmtilegri.

Fever To Tell by Yeah Yeah Yeahs
Oct 22 2024

Ótrúleg tilviljun að fá tvær plötur í röð frá sömu hljómsveit. Báðar plöturnar báðar mjög fínar. Mér fannst eldri platan hrárri og skemmtilegri.

Future Days by Can
Oct 23 2024

Talsvert tilraunakenndara er niðursuðudósa platan sem ég elska. En áhrif Can á tónlistarsöguna eru óumdeild.

Destroyer by KISS
Oct 24 2024

Skemmtilegt rokk sem eldist bara furðu vel. Beth er svo auðvitað algjör vangalagsnegla.

C'est Chic by CHIC
Oct 25 2024

Nile Rodgers er auðvitað snillingur og þessi gítar hans algjör stuðgjafi. En mér fannst "hin" lögin á plötunni óskök dauf.

Nilsson Schmilsson by Harry Nilsson
Oct 28 2024

Mjög skemmtileg plata. Without you auðvitað negla og ekki síðra á spænsku. Kókoshnetu lagið snilld og fullt af öðrum góðum lögum.

Who's Next by The Who
Oct 29 2024

Mjög gott rokk og töff plötuumslag. Baba O´Riley er epísk snilld. Síðustu 2 lögin neglur líka og margt gott þar á milli líka. Townshend semur þetta allt, einn af stóru snillingum rokksögunnar. Geggjaður gítarleikari.

Merriweather Post Pavilion by Animal Collective
Oct 30 2024

Mjög gott og skemmtilegt tilraunaindípop með bítlaívafi. Verður betra við hverja hlustun, rúllaði henni heilan vinnudag. Þá var Avey Tare tengdasonur Valtýs um tíma, sem hlýtur að vera hálft stig. :-) 4,5

B-52's by The B-52's
Oct 31 2024

Svakalega hresst, frumlegt og skemmtilegt. Ég er rokkhumar! Ótrúlegt að tvær svona risa Alt hljómsveitir eins og B52´s og REM hafi komið frá Athens Georgíu á sama tíma.

The Libertines by The Libertines
Nov 01 2024

Skemmtilegt skítugt rokk. Best þegar maður heyrir Mick Jones áhrifin í gíturunum. Kom mér líka á óvart hvað margt minnti á Pulp, sérstaklega Music when the lights go out, sem er mjög gott lag.

Hot Fuss by The Killers
Nov 04 2024

Britpop strákarnir frá Las Vegas hressir og skemmtilegir. Tveir smellir og restin bara fín. 3,5

Abraxas by Santana
Nov 05 2024

Allt í læ. Tvö frábær lög, restin skildi ekki mikið eftir.

Queen Of Denmark by John Grant
Nov 06 2024

Algjört meistaraverk. Ekki eitt leiðinlegt lag og textarnir frábært. Innflytjendur eru nefnilega ekki svo slæmir.

Crime Of The Century by Supertramp
Nov 07 2024

Þessi munnharpa í byrjun er íkonísk. Góð lög inn á milli, en í heild fannst mér þetta hins vegar ekki skemmtileg plata. Supertramp eiga mörg skemmtilög, en þessi plata var ekki að heilla mig.

Blood On The Tracks by Bob Dylan
Nov 11 2024

Ein af mínum uppáhalds Dylan plötum. Engir stórsmellir en mér finnst hún heildstæðasta platan hans. Simple twist of fate og Shelter from the storm eru þó bæði í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er bara einn Dylan!

1984 by Van Halen
Nov 12 2024

Ekki gott.

LP1 by FKA twigs
Nov 13 2024

Mér fannst þetta bara fínt. Kate Bush með trip hop ívafi. 3,5.

Led Zeppelin III by Led Zeppelin
Nov 14 2024

Fullreynt, þessi tónlist er ekki fyrir mig. Þurfti að bítla mig út úr þessu.

Parachutes by Coldplay
Nov 18 2024

Fínasta plata, rúllar ljúft og eldist vel. Yellow ber auðvitað höfuð og herðar yfir önnur lög, en önnur fín lög þarna eins og Dont panic og Sparks.

The Slim Shady LP by Eminem
Nov 19 2024

Meistari rímsins og frábær rappari. Ekki alveg hans besta stöff samt.

British Steel by Judas Priest
Nov 20 2024

Breaking the law er gott en restin var ekki að gera mikið fyrir mig. Er svo lélegur metalhaus.

Melody A.M. by Röyksopp
Nov 21 2024

Fín vinnutónlist frá Bergen.

In Utero by Nirvana
Nov 25 2024

Alveg geggjuð plata. Snilldar pródúktjón þar sem hrár krafturinn og sálarangist Kurt ristir inn að beini. Nirvana eru indie pönk ekki grunge.

Hail To the Thief by Radiohead
Nov 26 2024

Heldur ekki ein af mínum uppáhaldsplötum Radiohead og jafnast ekki alveg á við risana þeirra. Geldur fyrir það. En það breytir því ekki að í heildarmenginu er þetta frábær plata.

I See You by The xx
Nov 27 2024

Einhver allra besta vinnutónlist sem til er. Mjög fín og þægileg plata, þó hún sé ekki alveg jafn góð og fyrsta platan þeirra.

Marquee Moon by Television
Nov 28 2024

Alveg ótrúleg plata og gítarleikurinn æðislegur. "All your favorite rock bands fucking love this album."

Nov 29 2024

Mér fannst þetta virkilega fín plata. Svakalega góður kósí áreynslulaus fílíngur á henni. Ljúft gáfumannapopp.

You Want It Darker by Leonard Cohen
Dec 02 2024

Fínasta plata hjá Cohen, dimmrödduð. drungaleg og dauðinn í vændum.

Dec 03 2024

Meistaraverk. Ótrúlegt að hafi komið út fyrir meira en 50 árum. Tímamótaverk. Plötuumslag Storms Þorgeirssonar epískt.

Dig Your Own Hole by The Chemical Brothers
Dec 04 2024

Ég er að fíla þetta. Mjög hressandi elektró rokk. Where do I begin sem Beth Orton syngur kom mér líka skemmtilega á óvart.

Autobahn by Kraftwerk
Dec 05 2024

Þvílíkir snillingar og frumkvöðlar. Langt á undan sinni samtíð. Elska Autobahn, mætti ekki vera mínútu styttra. Skín í gegn hversu miklir snillingar þetta eru. Hlustaði alveg út í eitt og rúllaði Tour de France í leiðinni. Ef atmóið er rétt er ekkert betra en Kraftwerk.

Paul Simon by Paul Simon
Dec 09 2024

Paul alltaf ljúfur og fínn, sérstaklega með Julio á skólalóðinni.

Fear Of Music by Talking Heads
Dec 10 2024

Frábær plata. Upptaktur að Remain in light.

Back In Black by AC/DC
Dec 11 2024

Gaman að vera 14 ára aftur, það sem ég hlustaði á þessa plötu út. Geggjað rokk. Gleymist oft hvað botninn er ótrúlega þéttur, bassi og tromma gera Angust kleift að setja sínar slaufur ofan á pakkann. Back in black er ekkert eðlilega gott lag. Nostalgíu fimma.

Lady Soul by Aretha Franklin
Dec 12 2024

Alveg einstök söngkona. Mjög þægileg og góð plata í heild.

Talking Heads 77 by Talking Heads
Dec 16 2024

Frábær plata, fersk og frumleg. Komnir með sitt sérstaka sánd strax á fyrstu plötu. David Byrne er auðvitað snillingur. Að eiga Psycho Killer sem fyrsta singúl er auðvitað alveg magnað.

Ramones by Ramones
Dec 17 2024

Þvílík veisla. Ekkert gítarrúnk, bara keyrsla.

Fly Or Die by N.E.R.D
Dec 18 2024

Aldrei heyrt þetta. Pharell er ágætur. Sum lög fín, önnur ekki eins skemmtileg.

Real Life by Magazine
Dec 19 2024

Frábært brautryðjendaverk í postpönkinu, minni uppáhaldstónlistarstefnu.

NEU! 75 by Neu!
Dec 20 2024

Ótrúleg plata sem hefur haft gríðarleg áhrif á tónlistarheiminn síðan. Pönk, post pönk, Bowie, Sigurrós. Áhrifin eru út um allt. Sjöan var mjög tónlistarlega frjó í Þýskalandi.

Electric Ladyland by Jimi Hendrix
Dec 23 2024

Alveg örugglega besti gítarleikari allra tíma, en þetta er of mikið af gítarsólóum fyrir mig. Hittararnir fínir.

Pink Moon by Nick Drake
Dec 25 2024

Fullkomin aðfangadagsplata.

Bright Flight by Silver Jews
Dec 27 2024

Þetta er það sem ég elska í plötuleiknum, uppgötva eitthvað nýtt. Aldrei hlustað á Silver Jews, samt voru Malkmus og Bob úr Pavement upphaflega í henni. Frábært indírokk, rúllar mjög þæglega. Mjög góð vinnutónlist.

Songs From The Big Chair by Tears For Fears
Dec 30 2024

Fínasta eitís plata og TFF höfðu alltaf sitt ákveðna sánd. Smellirnir standa fyrir sínu og hin lögin bara fín. 3,5

xx by The xx
Dec 31 2024

Frábær vinnuplata. Var aðeins betri í minningunni.

Don't Stand Me Down by Dexys Midnight Runners
Jan 03 2025

Góð plata sem kom skemmtilega á óvart. Ekkert Come om Eileen stuð, heldur bara mjög þétt og góð lög með mikið af talsöng.

Dusty In Memphis by Dusty Springfield
Jan 06 2025

Frábær söngkona en líka með meistaradeildarlið með sér í lagasmíð. Mjög góð plata.

Doolittle by Pixies
Jan 14 2025

Fullkomin plata. Þétt, hrá og hröð, ekki veikur blettur Bara tvö lög yfir 3 mínútur og ekkert yfir fjórar. Svona eiga plötur að vera!

She's So Unusual by Cyndi Lauper
Jan 15 2025

Eitt af því besta í áttunni. Cindy Lauper frábær týpa.

Odelay by Beck
Jan 20 2025

Beck er snillingur. Alltaf frumlegur og með sinn stíl en samt í takt við tíðarandann.

Juju by Siouxsie And The Banshees
Jan 21 2025

Frábær postpönk plata, flott lög og skemmtilegur hljóðfæraleikur. Siouxsie hafði mun meiri áhrif en vinsældir þeirra gefa til kynna.

The New Tango by Astor Piazzolla
Jan 22 2025

Lítið stuð í þessu og skil ekki hvað þessi plata er að gera á þessum lista. Lyftutónlist, enginn tangókraftur í þessu.

Stardust by Willie Nelson
Jan 23 2025

Ósköp tilþrifalítið og meinlaust. Minnti á söngvara að spila róleg coverlög á kokteilbar. Skil ekki hvað þessi plata er að gera á þessum lista, Willie á betra skilið.

The Idiot by Iggy Pop
Jan 24 2025

Iggy og Bowie, það getur ekki klikkað. Góð plata í heild, nightclubbing fannst mér best. 4,2

Ágætis Byrjun by Sigur Rós
Jan 27 2025

Meistaraverk sem ég fæ aldrei leið á. Svo miklu meira en bara ágætis byrjun á frábærum ferlli Sigur Rós. 10/5

Parsley, Sage, Rosemary And Thyme by Simon & Garfunkel
Jan 28 2025

Fínasta plata hjá þeim félögum, ljúf og þægilegt. Verður þó pínu leiðigjarn til lengdar, 2 hlustanir alveg nóg.

Figure 8 by Elliott Smith
Jan 29 2025

Elliot fær 5 stjörnur hjá mér. Snillingur sem fór alltof snemma.

Elvis Presley by Elvis Presley
Jan 31 2025

Erfið plata að dæma. Mjög mikilvæg í rokksögunni en á sama tíma minnisvarði um ömurlega kynþáttamismunun Bandaríkjanna á þessum tíma.

Darkness on the Edge of Town by Bruce Springsteen
Feb 04 2025

Elsku besti Brúsi. Mín uppáhalds plata með honum. Ekki veikur hlekkur á plötunni og allar hans bestu hliðar njóta sín. Meira að segja smá áhrif frá pönkinu. Bandið eins og vel smurð vél í Chevy 69. Textarnir setja svo auðvitað kremið á kökuna. Þvílíkur sögumaður og orðsins snillingur. She sits on the porch of her daddy's house But all her pretty dreams are torn She stares off alone into the night With the eyes of one who hates for just being born Verður ekki meira hjartanístandi.

System Of A Down by System Of A Down
Feb 05 2025

Hrikalega þétt og hart. Kannski ekki endilega minn tebolli en átti ekki í neinum vandræðum með að hlusta frá upphafi til enda. Hljóðfæraleikurinn geggjaður og óskursöngurinn hressandi. Þetta er alveg plata til að koma manni í góðan gír. 3,5

Feb 06 2025

Ótrúleg plata, mikið frumherjaverk. Ansi mikil tilraunamennska til að taka inn í einum pakka, en einhvern veginn sogast maður samt inn í þetta.

Disraeli Gears by Cream
Feb 11 2025

Nei takk, ekkert Cream í minn tebolla.

Feb 12 2025

Ágætis rapp og bít. Hefur eflaust haft áhrif á sínum tíma, en þetta eldist ekki vel. Held að indie hljóti að vera miklu hollara fyrir óharðnaða unglinga.

Sea Change by Beck
Feb 13 2025

Frábær plata frá frábærum tónlistarmanni.

Hounds Of Love by Kate Bush
Feb 18 2025

Undrabarni og magnaður listamaður. Fyrri hlutinn frábær lög þar sem hún dáleiðir mann með sinnit ótrúlegu rödd. B hliðin, The ninth wave, er svo bara algjört listaverk. Hlustaði nokkrum sinnum á hana. Ótrúlega hugrakkt að hafa svona tilraunakennt concept verk á helmingi plötunnar, en sýnir hveru mikill listamaður hún er.

Meat Puppets II by Meat Puppets
Feb 19 2025

Mjög fínt og hressandi amrískt pönk. Fer í alls konar áttir.

Disintegration by The Cure
Feb 20 2025

Algjört meistaraverk. Besta plata Cure og Pictures of you besta lagið. Mynd af konunni sem hann er búinn að vera með frá því þau voru 14. Barnlaus, en South Park bætti úr því.

The White Album by Beatles
Feb 21 2025

Mjög erfið plata að dæma. Mjög mikið af lögum, sum frábær en önnur sem hefðu mátt missa sín. Blackbird, While my guitar og Julia algjörar perlur. Alls konar stílar og margt mjög framsækið. Helter Skelter og Happiness is a warm gun. Svo er ótrúlegt að þeir hafi sett Revolution 9 á plötu.

Crosby, Stills & Nash by Crosby, Stills & Nash
Feb 25 2025

Ótrúleg tilviljun að fá þessa plötu á eftir Neil Young. Ægilega fallegar raddanir, en alltof væmið og sætt fyrir mig. Meiri Neil Young maður. They were better with Neil Young and Neil Young is better without them.

Let It Bleed by The Rolling Stones
Mar 03 2025

Fínt rokk. Nokkur mjög góð lög, en ég er ekki sérstakur aðdáandi honky tonk.

Synchronicity by The Police
Mar 04 2025

B hliðin fullkomin en A hliðin gloppótt. Ekki besta plata Police. Frábær trommuleikur Copeland fær ekki að njóta sín á þessari plötu eins og á fyrstu plötunum.

Songs Of Love And Hate by Leonard Cohen
Mar 05 2025

Tvö frábær lög, nokkur ágæt Cohen lög og svo einhver sem hefðu alveg mátt missa sín. 3,5

Steve McQueen by Prefab Sprout
Mar 07 2025

Elska þessa plötu.

Metallica by Metallica
Mar 10 2025

Ekki alveg mín gó tú tónlist en hrikalega þétt og gott rokk. Smellirnir tveir standa enn fyrir sínu.

Meat Is Murder by The Smiths
Mar 11 2025

Slakasta Smiths platan finnst mér, en hinar eru auðvitað bara svo góðar. Nokkur góð lög, en í heild finnst mér þetta bara la la. Titillinn líka alltaf farið í taugarnar á mér, tilgerðarlegur. 3,5

Bug by Dinosaur Jr.
Mar 12 2025

Fílaðetta.

Skil ekki hvað þessi plata er að gera á þessum lista, fyrstu plötur U2 eru miklu betri. Fjögur af fimm fyrstu lögunum ágæt, restin algört drasl. Þristur þar sem mér hefur alltaf þótt vænt um Kite.

London Calling by The Clash
Mar 14 2025

Einfaldlega besta plata í heimi. Samt tvöföld plata á verði einfaldrar. 19 lög í öllum regnbogans litum og öll frábær. Góðir textar, réttsýn hugsun. Ekki einn veikur hlekkur. 100 stjörnur.

Document by R.E.M.
Mar 17 2025

Svakalega góð plata sem stenst tímans tönn vel. Ekki eitt leiðinlegt lag. Bjuggu til Alt Rock sándið. Ég er mikill aðdáandi fyrstu þriggja platnanna þeirra. :-)

Unknown Pleasures by Joy Division
Mar 18 2025

FRÁBÆR plata! Flottasta cover allra tíma og gríðarlega mikilvæg plata og hljómsveit. Lögðu grunninn að postpönkinu og höfðu áhrif á það sem á eftir kom allt fram til okkar tíma. Elska þennan hráa og kuldalega hljóðfæraleik og sönginn hans Ian Curtis. Svo eru það textarnir hans. “I’ve been waiting for a guide to come and take me by the hand. Could these sensations make me feel the pleasures of a normal man?” Angist í hverju orði sem gat ekki annað en orðið honum ofviða.

Red Dirt Girl by Emmylou Harris
Mar 19 2025

Ekki minn tebolli. Leiðinlegt.

Larks' Tongues In Aspic by King Crimson
Mar 20 2025

Kom mér á óvart. Mestan hluta áhugaverð tilraunatónlist, en döll prog inn á milli.

Franz Ferdinand by Franz Ferdinand
Mar 24 2025

Frábær hljómsveit og frumraun. Þétt og góð í heild með frábærum smellum. Besta hljómsveitarnafnið fyrir sagnfræðinörda.

Abbey Road by Beatles
Mar 28 2025

Það eru bara einir Bítlar og líklega er þetta besta platan. Ótrúlegt pródúktion en allir orðnir leiðir á hver öðrum. Bestu lög Harrisson og svo blanda af Paul's granny music og prógressívum lögum frá Lennon. I want you alveg ótrúlegt lag. Medleyið svo ótrúlega skemmtilegt, gítarriffin og trommusóló Ringo í The end alveg geggjað. 5++

The Velvet Underground & Nico by The Velvet Underground
Mar 31 2025

Ótrúleg plata. Listaverk held ég að lýsi henni best, bæði að innan og utan.

Blur by Blur
Apr 01 2025

Ákveðin vonbrigði. Farið að hægjast á Blur vélinni þarna. Besta lagið stolið frá Botnleðju.

Giant Steps by The Boo Radleys
Apr 03 2025

Allt í lagi en á ekkert erindi á þennan lista finnst mér. Lazarus er gott lag.

Clandestino by Manu Chao
Apr 04 2025

Mikkl uppáhaldsplata. Manu Chao er frábær.

Reggatta De Blanc by The Police
Apr 07 2025

Pólís eru bara ekki eins góð hljómsveit og mig minnti. Frábær trommuleikur en söngur Sting leiðigjarn til lengdar.

Guero by Beck
Apr 08 2025

Þétt og góð Beck plata sem hafði farið undir radarinn hjá mér. Earthquake weather viðeigandi þessa daganna.

Power In Numbers by Jurassic 5
Apr 10 2025

Kom skemmtilega á óvart. Ólíkt öðru rappi. Alls konar tónlistarstefnur notaður og flottur hljóðfæraleikur. 3,5

Murmur by R.E.M.
Apr 14 2025

Geggjuð plata. Ótrúlegt byrjendaverk.

Life's Too Good by The Sugarcubes
Apr 16 2025

Þessi plata er alltaf geggjuð. Sykurmolarnir voru svo góð hljómsveit og með sinn einstaka stíl. Auðvitað mikið Björk að þakka, en hin eru bara svo góð líka, trommuleikur Sigtryggs, gítarinn hjá Þór og kaflarnir hans Einars Arnar. Birthday besta lag íslenskra flytjenda.

Fire Of Love by The Gun Club
Apr 17 2025

Ágætis amríkupönk

The Velvet Underground by The Velvet Underground
Apr 21 2025

Mjög góð plata. Pale blue eyes frábært lag. Banana platan er samt betri.

The Queen Is Dead by The Smiths
Apr 24 2025

Fullkomin plata, ekki einn veikur hlekkur. Langbesta plata Smiths, lögin öll góð og textar Morrisey auðvitað snilld.

Beautiful Freak by Eels
Apr 25 2025

Skemmtileg plata. Gott fyrir sálina að fá smá novocaine. Hræðilegt cover. 3,5

Hot Rats by Frank Zappa
Apr 28 2025

Of flóknar tilraunir fyrir mig.

Nevermind by Nirvana
Apr 29 2025

Algjört meistaraverk. Ekki eitt leiðinlegt lag.

Idlewild by Everything But The Girl
Apr 30 2025

Ósköp þægilegt eitís en alls ekki ein af þúsund bestu plötum sögunnar.

Heroes by David Bowie
May 02 2025

Frábær plata. Heroes er auðvitað besta laga í heimi en hin lögin eru öll góð. . Instrúmental trílogían er frábær, ótrúlegir synthar miðað útgáfuár. Augljós Eno áhrif, en passar alveg fullkomlega inn. Gítarinn hjá Fripp í hinum lögunum fær líka 10.

Africa Brasil by Jorge Ben Jor
May 05 2025

Jorge kom skemmtilega á óvart. Mjög hress og skemmtileg plata.

Stand! by Sly & The Family Stone
May 06 2025

Ágætt.

Vauxhall And I by Morrissey
May 07 2025

Morrisey - Smiths = Sykurlaust kók

Songs The Lord Taught Us by The Cramps
May 09 2025

Hrikalega hresst, hrátt og skemmtilegt. Færðu heiminum sækórokkabillý hvort sem hann vildi það eða ekki. Tónlist að mínu skapi!

Music for the Masses by Depeche Mode
May 12 2025

Mjög góð plata en vantaði samt eitthvað smá extra til að lyfta henni upp í fimm. Tilraunalögin mjög skemmtileg.

Bridge Over Troubled Water by Simon & Garfunkel
May 13 2025

Stútfull plata af meistaraverkum en líka nokkur lög sem mér fannst ekkert sérstök. Meistaraverkin eru bara svo góð að maður gleymir því strax. Ef ég tek eitt út þá er Only living boy in New York algjörlega tímalaus snilld.

Music From The Penguin Cafe by Penguin Cafe Orchestra
May 14 2025

Áhugavert og fín vinnutónlist. Aldrei heyrt um þessar mörgæsir. Augljós Eno áhirf.

American Pie by Don McLean
May 15 2025

Fínt bara. Smellirnir 2 frábærir og hitt ósköp hugljúft.

Are You Experienced by Jimi Hendrix
May 19 2025

Tvö þrjú mjög góð lög, en í heild er þetta of mikið gítarrúnk fyrir mig.

I Should Coco by Supergrass
May 20 2025

Frábær plata, ekki eitt leiðinlegt lagt.

Superfuzz Bigmuff by Mudhoney
May 21 2025

Frum grunge. Upprunalega platan bara 23 mín. sem hentaði grungeþoli mínu vel. Allt umfram það veruleg skerðing á lífsgæðum.

Roxy Music by Roxy Music
May 23 2025

Fínt listarokk. Fannst samt for your pleasure betri.

This Is Fats Domino by Fats Domino
May 26 2025

Fats er alltaf góður en mér finnst skrýtið að það séu safnplötur á þessum lista.

The Clash by The Clash
May 27 2025

Besta pönkplatan og White riot besta pönklagið. En öll lögin geggjuð og textarnir hans Joe eru svo góðir. Og svo eru allir löngu orðnir leiðir á USA.

Band On The Run by Paul McCartney and Wings
Jun 03 2025

Fínasta plata, Paul er auðvitað snillingur. Smá uppfylling í lokin. 3,5.

Picture Book by Simply Red
Jun 04 2025

Alltílæ eitís. Sá þá í höllinni 1986.

Solid Air by John Martyn
Jun 05 2025

Áhugavert.

Teenager Of The Year by Frank Black
Jun 06 2025

Mjög góð plata sem ég hafði ekki hlustað á áður. Vann mikið á, stutt skemmtileg lög. Mjög ólíkt Pixies.

Led Zeppelin II by Led Zeppelin
Jun 09 2025

Þetta er ekki fyrir mig. II stjörnur.

Back To Black by Amy Winehouse
Jun 10 2025

Frábær plata með frábærum listamanni sem kvaddi okkur alltof snemma,

Exile On Main Street by The Rolling Stones
Jun 11 2025

Aldrei skilið hæpið í kringum þessa plötu, reynt nokkrum sinnum. Ég er líklega merira rokk en blús. Nokkur góð lög.

Here's Little Richard by Little Richard
Jun 12 2025

Alveg ótrúlegt debbútt albúm og svakalegur karakter. Við rokkararnir eigum þessum frumherjum mikið að þakka.

Surf's Up by The Beach Boys
Jun 13 2025

Mjög áhugaverð plata. Allt öðru vísi en eldra stöffið þeirra en fín lög, nema Student demostration. Harmoníurnar þeirra eru alltaf ótrúlegar. Ekki Pet sounds en grillir alveg í snilldina. RIP Brian Wilson.

Paranoid by Black Sabbath
Jun 16 2025

Fjarki fyrir Sela.

White Blood Cells by The White Stripes
Jun 17 2025

Frábær plata. Hrátt og skítugt. Dalar aðeins á köflum.

Seventh Tree by Goldfrapp
Jun 19 2025

Allt í lagi, engar flugeldasýningar. Fín vinnutónlist.

The White Room by The KLF
Jun 20 2025

Meistarar reifsins. 3 + 1 fyrir anarkismann.

Bayou Country by Creedence Clearwater Revival
Jun 23 2025

Solid CCR

Catch A Fire by Bob Marley & The Wailers
Jun 24 2025

Hrikalega hrein og góð reggí plata út í gegn. Mikill snillingur hann Bob, en hinir eru sko ekkert síðri, þvílíkur hljóðfæraleikur. Þetta er klár fimma, Seleh man sér um rökstuðning.

Savane by Ali Farka Touré
Jun 25 2025

Þægilegur eyðimerkur blús. Alltaf gaman þegar tónlistarmenn frá Afríku ná athygli umheimsins.

Transformer by Lou Reed
Jun 27 2025

Fimma stóru laganna.

Neon Bible by Arcade Fire
Jun 30 2025

Arcade Fire er góð hljómsveit, en bæði Funeral og Suburbs eru miklu betri plötur. 3,5.

Lost In The Dream by The War On Drugs
Jul 02 2025

Voða vandað, huggulegt og þægilegt, en get alls ekki hlustað á þetta til lengdar.

One World by John Martyn
Jul 04 2025

Fínasta tónlist. Sting áður en Sting varð Sting.

Channel Orange by Frank Ocean
Jul 07 2025

Þessi kom mér skemmtilega á óvart. Rúllaði alveg frábærlega í gegn, alls konar stílar og ekkert leiðinlegt. Mjög góð tónlistarsjávarsúpa.

So by Peter Gabriel
Jul 08 2025

Eitís Gabriel var ansi góður. Ótrúlega mikið af góðum lögum á þessari plötu, en það voru ekki síst myndböndin hans sem þóttu geggjuð í áttunni. Nostalgíu fjarki.

Jul 09 2025

Tæi elskar póstönk, þetta er frábær plata. Á að vera poppaðasta plata þeirra, en rugludallurinn Mark E. Smith passar að það fari nú ekki út í neinar öfgar. Besta lag: Barmy.

Dog Man Star by Suede
Jul 11 2025

Ég hef ekki verið sérstakur aðdáandi Suede sándsins, en þessi plata fannst mér mjög heildarverk. Eiginlega ekkert leiðinlegt lag.

Pelican West by Haircut 100
Jul 14 2025

Hresst og þægilegt eitís. Eldist furðu vel. 3,5

The Grand Tour by George Jones
Jul 15 2025

Alls ekkert svo slæmt kántrý.

Odessa by Bee Gees
Jul 17 2025

Vá hvað þetta er leiðinlegt.

Brutal Youth by Elvis Costello
Jul 18 2025

Frekar klassískur Costello en vantaði hittara. Besta lag This is hell.

If You're Feeling Sinister by Belle & Sebastian
Jul 21 2025

Ósköp ljúft og þægilegt, en aðeins og pólerað fyrir mig. Pure easy listening. 3,5

Rock 'N Soul by Solomon Burke
Aug 20 2025

Mjög fínt sólrokk.

Ellington at Newport by Duke Ellington
Aug 21 2025

Fínt að fá smá jass. Alveg geggjaðir hljóðfæraleikarar, algjörir snillingar.

The Coral by The Coral
Aug 22 2025

Ekki skemmtilegt.

Vulnicura by Björk
Aug 25 2025

Björk er einstakur listamaður. Mjög flott plata.

Fisherman's Blues by The Waterboys
Aug 26 2025

Yndisleg plata, gæti hlustað á hana endalaust.

Psychocandy by The Jesus And Mary Chain
Aug 27 2025

Frábær hljómsveit sem hafði mikil áhrif. Póstpönkið varð að shoegaze.

21 by Adele
Aug 28 2025

Svakalega vönduð og flott plata hjá Adele. Ótrúlega þroskuð.

Let England Shake by PJ Harvey
Sep 01 2025

Alveg hrikalega sterk plata frá PJ, þar sem hún drullar yfir öll stríð í heiminum fyrr og síðar. Titillagið alveg óendanlega töff.

The Good, The Bad & The Queen by The Good, The Bad & The Queen
Sep 02 2025

Fínasta stöff hjá Damon og mínum manni Paul. Vantar samt smá púður í þetta til að gera þetta eftirminnilegra.

Mask by Bauhaus
Sep 04 2025

Mjög töff pregoth/postpunk. Kuldi kjarnorkuáttunnar allsráðandi. Minnir auðvitað talsvert á Joy Division.

Nowhere by Ride
Sep 05 2025

Pre shoegaze og svo shoegaze. Algóritminn meikar sens.

Tom Petty & The Heartbreakers by Tom Petty and the Heartbreakers
Sep 08 2025

Vil ekki tala illa um látinn mann, en þetta er ekki tónlist fyrir mig.

Group Sex by Circle Jerks
Sep 09 2025

Stórskemmtilegt paunk. 14 lög á 15 mín, verður ekki pönkaðra en það.

Deserter's Songs by Mercury Rev
Sep 10 2025

Mjóg góð plata. Ótrúlegt líkt Flaming lips enda tenging, en gaurarnir syngja eiginlega alveg eins.

Elvis Is Back by Elvis Presley
Sep 12 2025

Ósköp fínt og þægilegt en ekkert meira en það.

1977 by Ash
Sep 15 2025

Góð plata hjá unglingasveitinni Ash. Þétt og góð. Leiðinlegt að þeir skyldu ekki ná lengra en þeir gerði. Besta lag Goldfinger.

The Suburbs by Arcade Fire
Sep 17 2025

Þetta er frábær plata hvað sem öllu metoo líður. Besta lag Sprawl II.

Axis: Bold As Love by Jimi Hendrix
Sep 18 2025

Jimi er óumdeildur snillingur og án efa einn besti gítarleikari allra tíma. Þessi tónlist er hins vegar ekki fyrir mig.

Let Love Rule by Lenny Kravitz
Sep 19 2025

Fínasta frumraun hjá Lenny. Mr. Cab driver alltaf kúl lag. 3,5

Funeral by Arcade Fire
Sep 22 2025

Flott plata.

The Rising by Bruce Springsteen
Sep 24 2025

Hrikalega þéttur og góður Brúsi, enda fyrsta platan með E Street band í 18 ár. Textarnir og uppgjörið við 9/11 þar sem umburðarlyndi er lykilorðið setja þetta svo á annað level. Verst að Bush hafi ekki hlustað á plötuna.

The Specials by The Specials
Sep 29 2025

Frábær plata. Hressandi ska með beittum textum.

Low-Life by New Order
Sep 30 2025

Elska New Order sándið. Mjög ólíkt Joy Division en samt kemur JD alltaf annað slagið í gegn. Frábær lög og minningarlagið um Ian Curtis mjög fallegt.

Suzanne Vega by Suzanne Vega
Oct 02 2025

Mjög ljúf og góð plata hjá Suzanne, frábært söngvaskáld. Mjög góð vinnutónlist. A hliðin þó sterkari en B hliðin.

Oct 07 2025

Complexaður snillingur. Einn best lagahöfundur sinnar kynslóðar. Vönduð plata, rólegu lögin hans leyna svo á sér. Frábær söngur. Fimma frá okkur hjónum.

Natty Dread by Bob Marley & The Wailers
Oct 08 2025

Gott reggí stöff.

Smile by Brian Wilson
Oct 09 2025

Áhugavert en óklárað.

Porcupine by Echo And The Bunnymen
Oct 10 2025

Frábært drungarokk sem fangar tíðarandann vel. Ekki skemmir kover myndin fyrir.

Connected by Stereo MC's
Oct 13 2025

Grúví hipp tripp hopp og gott stuð. Soldið svipað allt samt.

Hot Shots II by The Beta Band
Oct 14 2025

Alls ekki svo slæmt. Margt mjög gott en annað síðra. Sumt minnti mig á Beck.

Oct 16 2025

Frábær plata, sterk lög og beittir textar. Svo mikil tilfinning og sársauki í röddinni. Nothing compares to u auðvitað með flottari lögum, en Black boys on mopeds ekki síðra. Svo hafði hún auðvitað rétt fyrir sér með kaþólsku kirkjuna.

Throwing Muses by Throwing Muses
Oct 17 2025

Fíla þetta. Hrátt og hressandi.

Djam Leelii by Baaba Maal
Oct 20 2025

Fínasta vinnutónlist frá Senegal.

Everything Must Go by Manic Street Preachers
Oct 21 2025

Það sem Axel sagði og A design for life er frábært lag. 3,5

Go Girl Crazy by The Dictators
Oct 22 2025

Hafði aldrei heyrt um þessa frumpönksveit og hafði bara gaman af því að kynnast þeim. Skilur samt ekkert eftir sig.

Ég varð fyrir vonbrigðum. Platan hefur væntanlega sagnfræðilegt gildi um það þegar Dylan fór í rafmagnið, en það er búið að gera margar myndir og þætti um það. Órafmagnaði hlutinn fannst mér beinlínis leiðinlegur. Svo augljóst að hann nennti ekki þessu acoustic dæmi og eyðilagði hreinlega góð lög. Rafmagnaði hlutinn hressari og nokkur frábær Dylan lög, en inn á milli bara boring.

Scott 4 by Scott Walker
Oct 27 2025

Við Thom skjálgur vinur minn erum sammála um að þetta sé meistaraverk.

Histoire De Melody Nelson by Serge Gainsbourg
Oct 28 2025

Serge getur verið töff en þetta var ekki að grípa mig og perralegt að auki.

Young Americans by David Bowie
Oct 29 2025

Bowie er alltaf góður. Fín plata og alltaf til í að prófa eitthvað nýtt. Og af hverju þá ekki að prófa smá plastsoul.

Tracy Chapman by Tracy Chapman
Oct 31 2025

Ótrúlegt byrjendaverk, hrikalega góð lög og sterkir textar. Man enn vel þegar Tracy birtist alveg óþekkt á Nelson Mandela tónleikunum 1988 og gjörsamlega sló í gegn með sinni hæglátu framkomu en áhrifamiklu lögum. Því miður lítið breyst til batnaðar af þvi sem hún syngur um.

S&M by Metallica
Nov 04 2025

Vel útsett og spilað og stóru Metallica lögin nutu sín vel. 135 mínútur af Metallica aðeins og mikið fyrir mig.

Oedipus Schmoedipus by Barry Adamson
Nov 05 2025

Barry er mjög áhugaverður og þetta var mjög áhugaverð plata. Alls konar stefnur og stílar. Jarvis og Nick krydduðuð þetta líka vel. Skemmtilegt þegar listann kynnir mann fyrir einhverju nýju sem er í rauninni gott.

Next by The Sensational Alex Harvey Band
Nov 06 2025

Betra en ég átti von á, en ég gat samt bara hlustað á hana einu sinni.

Talk Talk Talk by The Psychedelic Furs
Nov 07 2025

Ágætis póstpönk. Þó ekki meðal þess besta í því frábæra genre.

White Ladder by David Gray
Nov 11 2025

Mjög huggulegt og fínt, þægileg rödd. 3,5

Wild Gift by X
Nov 14 2025

Gott pönk og skemmtilegt.

69 Love Songs by The Magnetic Fields
Nov 17 2025

Ágætt stöff en alltof mörg lög.

New Wave by The Auteurs
Nov 19 2025

Þægilegt alt rock en engar flugeldasýningar.

Is This It by The Strokes
Nov 21 2025

Frábær plata. Einfaldleikinn í fyrirrúmi, bassi gítar tromma. Vonandi á rokkið svona endurkomu aftur fljótlega.

The Slider by T. Rex
Nov 24 2025

Mjög þétt og gott rokk hjá Mac Bolan og T. Rex. Lifir ótrúlega vel.

Bad Company by Bad Company
Nov 26 2025

Einfalt og þétt rokk.

Suede by Suede
Nov 27 2025

Mjög góð plata, fersk og flott. Með betri fulltrúum Britpopsins á þessum lista.

Unhalfbricking by Fairport Convention
Nov 28 2025

Ósköp hugljúft en ekki eitthvað sem ég nenni að hlusta á aftur.

The Age Of The Understatement by The Last Shadow Puppets
Dec 01 2025

Fake sixties. Allt í lagi en ekki eitthvað sem ég nenni að hlusta á aftur.

McCartney by Paul McCartney
Dec 02 2025

Látlaust og fínt en engar rósir nema Maybe Im amazed.

Dec 04 2025

Ansi fín plata. Þægilega lög og Linda syngur vel. Fróðlegt að kynnast meira þessari ensku þjóðlagabylgju. Fín vinnutónlist.

Calenture by The Triffids
Dec 05 2025

Ástralskt eitís en ekki gott. Veit ekki hvað þessi plata er að gera á listanum.

Gris Gris by Dr. John
Dec 09 2025

Mjög skrýtið en áhugavert.

Lam Toro by Baaba Maal
Dec 11 2025

Fín afrísk tónlist.

Sail Away by Randy Newman
Dec 16 2025

Allt í lagi. Disneylögin eru skemmtilegri.

Hejira by Joni Mitchell
Dec 23 2025

Ósköp ljúft og fínt. Ekki mikill Joni aðdáandi en hún er flottur listamaður.

Kid A by Radiohead
Dec 31 2025

Meistaraverk.

Bone Machine by Tom Waits
Jan 06 2026

Það er bara einn Tom Waits.

Penthouse And Pavement by Heaven 17
Jan 07 2026

Áhugaverð plata. Vissi ekki að Heaven 17 hefðu stofnað Human League. Auðheyrt í mörgum lögum. Frumsynthatónlist sem ég hafði gaman af. Þeir fóru svo í miklu poppaðri lög eins og Temptation.

Hearts And Bones by Paul Simon
Jan 08 2026

Kósý vinnuplata. Greinilega svona millibilsplata áður en hann breytit um kúrs og hendir sér í Graceland.

Exodus by Bob Marley & The Wailers
Jan 12 2026

Bob Marley var alveg ótrúlegur meistari. Platan í heild alveg geggjuð. Jammin, Three little birds og One love extra góðir gullmolar og Punky Reggae party algjör snilld.

Bitte Orca by Dirty Projectors
Jan 13 2026

Fínasta indírokk. Tónar vel við það sem var að gerast í indíinu á þeim tíma.

Repeater by Fugazi
Jan 14 2026

Geggjuð hljómsveit, hart og gott. Hentar vel í mykri en ekki endilega besta vinnutónlistin í sól og sælu.

Want One by Rufus Wainwright
Jan 15 2026

Svakalega dauft og svæfandi. Ekkert að gerast. Sýnist líka öll hans vinsælustu lög vera cover lög.

Snivilisation by Orbital
Jan 16 2026

Fín og þægileg raftónlist. Gott að vinna við þetta.

Le Tigre by Le Tigre
Jan 19 2026

Fínt og hressandi feminískt riot grll.

Sound Affects by The Jam
Jan 21 2026

Geggjuð hljómsveit og frábær plata.

Liege And Lief by Fairport Convention
Jan 22 2026

Gaman að kynnast þessu enska fólk rokki sem er dælt í okkur núna. Smá miðaldastemmning í þessu.

Searching For The Young Soul Rebels by Dexys Midnight Runners
Jan 23 2026

Ágætis plata, fín lög. Leiðinlegt að Come on Eileen sé eina lagið sem nokkur þekkir með þeim.

Like A Prayer by Madonna
Jan 27 2026

Ekki minn tebolli en eðalpopp. 3,5

Rattlesnakes by Lloyd Cole And The Commotions
Jan 29 2026

Geggjað gáfumannapopp og góðir textar. Plata sem var í miklu uppáhaldi hjá mér, líklega þarf maður að hafa kynnst þessu í áttunni og hafa séð þá í höllinni 1984 til að fíla.

Can't Buy A Thrill by Steely Dan
Jan 30 2026

Vandað eins og SD er von og vísa. Góðir hittarar, b hliðin aðeins slappari.

GI by Germs
Feb 02 2026

Grjóthart og geggjað pönk.

Blue Lines by Massive Attack
Feb 03 2026

Alltaf jafn svalt.

The ArchAndroid by Janelle Monáe
Feb 04 2026

Afskaplega vandað og þægilegt.

Let It Be by The Replacements
Feb 05 2026

Skítugt og gott rokk.

D by White Denim
Feb 16 2026
Highway 61 Revisited by Bob Dylan
Feb 20 2026

Hvað er hægt að segja um plötu sem ræsir á Like a rolling stone. Meistaraverk. Besta heildarplata Dylan finnst mér.

Feb 24 2026

Frábær hljómsveit. Þarna komnir úr pönkinu í altrokkið. Ekki þeirra besta plata en fín.

Either Or by Elliott Smith
Feb 26 2026

Elliot var snillingur. Sorgarsaga. Frábær plata, fullkomin vinnutónlist.

The Soft Bulletin by The Flaming Lips
Mar 02 2026

Elska Flaming lips. Frábær plata.

Vespertine by Björk
Mar 03 2026

Klárlega einn mesti listamaður síðari tíma. Með sinn eigin hljómheim, sífellt í þróun, skapandi og á undan sinni samtíð. Og svo er hún íslensk.

Back to Mystery City by Hanoi Rocks
Mar 04 2026

Örugglega ekki margar finnskar hljómsveitir á þessum lista, en hármetall er ekki alveg mín tónlist.

Chirping Crickets by Buddy Holly & The Crickets
Mar 06 2026

Frábær tónlistarmaður hann Buddy Holly. Hefði örugglega haft mikil áhrif hefði hann lifað. Töff gleraugu líka.

Copper Blue by Sugar
Mar 09 2026

Fínasta stöff. Alternative með smá grunge ívafi.

Hypnotised by The Undertones
Mar 10 2026

Hrikalega skemmtilegt, ferskt og hressandi. Frábær hljómsveit.

Dust by Screaming Trees
Mar 12 2026

Mjög góð plata og hljómsveit. Fíla Mark Lanegan.

Atomizer by Big Black
Mar 16 2026

Hart og flott. Albini var snillingur.

Scott 2 by Scott Walker
Mar 17 2026

Klassískur Scott Walker. IV er þó betri.

Metal Box by Public Image Ltd.
Mar 19 2026

Mjög gott og þróaðra póstpönk hjá PIL. Bassinn hjá Jah Wobble geggjaður. "Söngur" Lydon truflar örugglega marga en ekki mig.

A Girl Called Dusty by Dusty Springfield
Mar 20 2026

Góð plata. Frábær söngkona hún Dustu og nær að gera öll lög að sínum.

Hlustaði á hana alla í gegn mér til lítillar gleði. Ekki fyrir mig. En óþroskaðir unglingsstrákar þurfa víst sína tónlist. Álitið jókst nú ekki þegar ég las að Fred elskað Pútin.

Two Dancers by Wild Beasts
Mar 24 2026

Kom skemmtilega á óvart. Mjög gott stöff. Ótrúlegt raddsvið hjá söngvaranum.

Penance Soiree by The Icarus Line
Mar 25 2026

Bara fínt noiserock. Flottur gítar og gítaróhljóð.

Felt Mountain by Goldfrapp
Mar 27 2026

Bara fínt. Góð vinnutónlist.

Phaedra by Tangerine Dream
Mar 30 2026

Frumkvöðlar í raftónlist.

Mar 31 2026

Þyngri en Different class en samt mjög góð.

Apr 02 2026

Elbow var mjög góð hljómsveit, vanmetnir. Soldið Peter Gabriel væb á þessari plötu. One day like this er svo algjör banger.

m b v by My Bloody Valentine
Apr 03 2026

Kúl shoegaze, maður skilur vel að ekki sé hægt að líta upp þegar menn eru að spila svona svala tónlist og þurfa að afstilla gítarinn rétt.

Tapestry by Carole King
Apr 06 2026

Alveg ótrúleg plata, hvert öðru betra. Óhætt að kalla þetta meistaraverk. Klárlega einn besti lagahöfundur allra tíma.

Five Leaves Left by Nick Drake
Apr 10 2026

Ótrúlegur snillingur. Verður ekki fallegra, algjörlega tímalaust. Sorgarsaga.

Apr 13 2026

Annie Lennox er svo góð söngkona. Eurytmics voru með því besta í áttunni, Sweet dreams er einfaldlega stórkostlegt lag.

Apr 14 2026

Ég var að fíla þetta. Er algjör sökker fyrir rough around the edges geezerum. Hrá fegurð.

Miriam Makeba by Miriam Makeba
Apr 15 2026

Þetta fannst mér alveg frábær plata. Ótrúlegur listamaður að hafa getað breitt út svona tónlist árið 1960. Mikilvæg í baráttunni gegn Apartheid líka.

Surfer Rosa by Pixies
Apr 17 2026

Þessi plata er svo góð, algjör negla. Það er ekki einn veikur hlekkur á henni, bara keyrsla út í gegn. Albini upp á sitt besta. 10/5

The Scream by Siouxsie And The Banshees
Apr 20 2026

Siouxie var ógeðslega flott. Ein af fyrstu postpönk plötunum og hafði mikil áhrif á það sem á eftir kom.

Hms Fable by Shack
Apr 22 2026

Ágætis eitís rokk. Rúllaði án óþæginda en ein hlustun var alveg nóg. Á auðvitað ekkert erindi á þennan lista og kemur afskaplega illa út í samanburðinum við Sgt. Peppers.

Countdown To Ecstasy by Steely Dan
Apr 23 2026

Klassískur Steely Dan. Smooth og (of)pródúserað.

Time Out Of Mind by Bob Dylan
Apr 27 2026

Fínasta endurkomuplata hjá Dylan. Make you feel my love ótrúlega fallegt lag.

Pink Flag by Wire
May 11 2026

Geggjuð plata og ótrúlegt að hún sé frá 1977. Wire hafði mikil áhrif á þá tónlist sem á eftir kom, langt umfram þá athygli sem þeir fengu á sínum tíma.

Germfree Adolescents by X-Ray Spex
May 12 2026

Pönkið er einfaldlega besta tónlistin og hvar ætli tónlist væri í dag ef það hefði ekki komið fram. Beitiir textar, Poly töff og saxinn kremið á kökunni.

May 14 2026

Frábær plata og töff sánd. Ótrúlegt að þetta hafi verið tekið upp á þessu árabili, Aphex langt á undan sinni samtíð í raftónlistinni.

Tom Tom Club by Tom Tom Club
May 15 2026

Skemmtileg plata frá hliiðarverkefni Chris og Tinu í Talking heads. Létt og þægilegt.

Hunky Dory by David Bowie
May 19 2026

Það er bara einn David Bowie.

Opus Dei by Laibach
May 20 2026

Áhugavert að fá slóvenskt listarokk frá tímum Tító. Coverlögin mögnuð og coverið flott.

Jack Takes the Floor by Ramblin' Jack Elliott
May 21 2026

Ágætis þjóðlagatónlist en ekkert að skara fram úr öðrum í þeim geira. Kallinn ennþá á lífi 94 ára. 2,5

3 + 3 by The Isley Brothers
May 25 2026

Flott föstudagsfönk. Góður hljóðfæraleikur og söngur. Alveg til í að hlusta á aftur.

Henry's Dream by Nick Cave & The Bad Seeds
May 27 2026

Frábær plata og geggjuð lög. Mjög þétt plata hjá Nick, engir tvistar og mikið af lögunum sem lifa góðu lífi í dag.

Sunshine Hit Me by The Bees
May 28 2026

Ósköp þægilegt, en ekkert erindi á þennan lista. Alveg óþekkt og ekkert nýtt í þessu.

Live At Leeds by The Who
Jun 01 2026

The Who var frábær rokkhljómsveit. Alltaf pínu skrýtið að vera með safnplötur eða live plötur á þessum lista, en Who voru auðvitað frægastir fyrir sínu villtu læv shóv.

Harvest by Neil Young
Jun 02 2026

Meistaraverk frá Njáli. Svakalega góð lög og textar.

Your Arsenal by Morrissey
Jun 04 2026

Óþolandi gaur en góður tónlistarmaður og textahöfundur. Sóló stöffið samt ekki næstum jafn gott og Smiths.

Jun 08 2026

Hef aldrei verið mikill Elton John maður en þetta kom mér skemmtilega á óvart. Óvænt byrjun, svo hugsaði maður til Díönu og svo bara stuð og skemmtilegheit. Píanóleikurinn geggjaður hjá honum.

Treasure by Cocteau Twins
Jun 09 2026

Frábær plata og rosalega þægileg að hlusta á. Bjuggu til skilgreininguna á draumapoppi.

Ocean Rain by Echo And The Bunnymen
Jun 10 2026

Echo and the Bunnymen var svo góð hljómsveit. Frábær plata, allt góð lög, eini gallinn kannski að hún er of stutt.

The La's by The La's
Jun 11 2026

Þetta var einmitt svona La La. Fyrir utan smellinn ekki mikið að gerast.

L'Eau Rouge by The Young Gods
Jun 12 2026

Ég var að fíla þetta. Dökkt og gróft og franskan passaði vel við þetta. Rúllaði henni oftar en einu sinni í gegn.

Duck Stab/Buster & Glen by The Residents
Jun 15 2026

Skrýtið, mjög arty og mikil tilraunamennska. Mjög crazy en ég var að fíla þetta.

Leftism by Leftfield
Jun 16 2026

Mjög kúl og flottir taktar.

Jun 17 2026

Tainted love og Say hello wave goodbye er stórkostleg lög. Nokkur þokkaleg lög líka, en soldið af fillerum þó upphaflega platan sé bara 10 lög.

Pump by Aerosmith
Jun 19 2026

Drasl. Ótrúlegt að þetta hafi einhvern tímann verið vinsælt. Gat ekki hlustað á eitt lag til enda.

Rid Of Me by PJ Harvey
Jun 25 2026

Polly er frábær listamaður. Góður lagasmiður og þessi hráa orka er geggjuð. Albini líka alltaf góður.

Tea for the Tillerman by Cat Stevens
Jun 26 2026

Mjög fín og þægileg plata hjá Högna Stefáns. Ljúfur lagasmiður. 4,5

Licensed To Ill by Beastie Boys
Jul 02 2026

Geggjuð plata. Eldist ótrúlega vel.

My Aim Is True by Elvis Costello
Aug 10 2026

Solid plata hjá Costello.

Astral Weeks by Van Morrison
Aug 11 2026

Þarf að Vanda mig svo þetta verði ekki Vandræðalegt. Er Vanalega ekki mikið fyrir Van en ekki Vantar ekki hæfileikana og ég veit að þetta er hans Vandaðasta verk. Vandamálið sjálfsagt Vankunnátta mín. Hann Vann aðeins á en það er Vandlifað þegar maður er svona Vandfýsinn.

Kinks eru alltaf góðir, en mér fannst vanta aðeins húmorinn og pönkið sem er í bestu lögum þeirra. Ekki viss um að nenna að hlusta á þetta aftur. Það sem mér fannst skrýtið var hvað söngurinn og lögin minntu mikið á Paul McCartney. 3,5

Cheerleader

Average rating: 3.68 (0.41 above global average).

Other

Album origins are grouped into three buckets: US, UK, and everything else. “Other” means the artists you rate highest are from outside the US and UK.